11. mars 2008 klukkan 17:53
Jæja mér fannst ég verða að skrifa eitthvað af því ég hef ekki gert það svo lengi. Er ekki að gera neitt þessa dagana nema sitja á rassinum eða vinna. Ég hef ekki samið eitt ljóð síðan að ég kom heim, er farin að halda að andagiftin hafi yfirgefið mig. En hér er eitt ljóð eftir mig, enjoy.
Góði vinurLeiddu mig burt frá svartnættinu.
Leiddu mig í gegnum gufuna.
Opnaðu augun mín glaðlega.
Snertu kinn mína mjúklega.
Biddu fyrir mér góði vinur.
Umvefðu mig, þetta saltaða sár.
Krefstu einskis af mér,
ég sit hérna tómhent.
Uppfull af lygum.